Flug manual
Hér er nýuppfærður flight manual fyrir okkar Super Dímónu með öllum viðbótum og uppfærslum fram til dagsins í dag.
Það eina sem vantar þarna er uppfærð viktunarsíða.
Svifflugur á D-Day
Gaman að því að TF-SBA fyrsta tveggja sæta kennsluvél SFA var hönnuð fyrir bandaríska herinn til þjálfunar fyrir þessa flugmenn en var síðan ekki notuð þar sem hún þótti einum of góð sviffluga !
http://en.wikipedia.org/wiki/Schweizer_SGS_2-12 Og þessi setningu hér get ég tekið undir, ég man eftir bölvinu og ragninu frá Snæbirni þegar við vorum að reyna að berja þetta apparat saman ! The SGS 2-12 is a large and heavy glider. It is also difficult and time-consuming to remove the wings for trailering or storage. Svo flaug þetta ágætlega, hékk að vísu sjaldan lengi uppi.
Viðhald á PH-1101
Það eru líklega enn einhverjir dagar í að varahlutir í PH-1101 verði komnir til landsins og þangað til er ekki vitað hvenær ársskoðun lýkur. Viðhaldið nú snýst að stærstum hluta um skipti á gúmmíslöngum og öðrum tímaháðum hlutum vélarinnar.
Nánari upplýsingar koma þegar við vitum betri tímasetningu á varahlutapöntuninni.
Flugöryggismála-fundur
Hinn árlegi fundur um flugöryggismál verður haldinn fimmtudaginn 27.mars kl: 20.00. Ragnar Guðmundsson fulltrúi hjá Rannsóknarnefnd samgönguslysa mætir á fundinn og ræðir óhöpp og slys sl.árs . Allir félagsmenn og flugáhugamenn hvattir til að koma. Bætum þekkingu okkar.
Veitingar í boði.
Staður Félagsheimili VFA Skýli 13
Verðskrá 2025
Árgjald 18.000.-
Blanik - TF-ABS
Svifgjald 6.000.- kr á tímann
Flugtog upp í 2000 fet 7.000.- kr
Mótorsviffluga TF-SBP
Svifgjald 6.000.- kr á tímann
Mótorgjald 14.000.- kr á tímann
Klukkutíma flug er því 20.000 kr, bensín innifalið.
Ef mótor er ekki notaður og vélinni eingöngu svifið þá kostar hún 6.000.- kr á tímann.
Nemendapakkar
Stakt kynnisflug eða útsýnisflug kostar 18 þús kr og er miðað við 20 mínótna flug að jafnaði.
Nemendapakki A: 5 flug í pakka á 10 þús kr. hvert flug, samtals 50 þ pakkinn.
Nemendapakki B: 10 flug í pakka á 9 þús kr. hvert flug, samtals 90 þús kr. Pakkinn.
Kennarinn ákveður eftir veðurfarsaðstæðum og aðgengi að dráttarflugvél hvort flogið er á mótorsvifflugu eða hefðbundinni svifflugu sem er dregin af dráttarflugvél.
Kennarinn reynir að láta nemandann prófa báðar aðferðir.
Page 5 of 5